Laugarás Lagoon, hlaðið batteríin saman á Suðurlandi
Langar ykkur að gera eitthvað virkilega gott fyrir hópinn? Laugarás Lagoon er frábær áfangastaður fyrir starfsmannahópa sem vilja komast aðeins út úr hversdagsleikanum, njóta samverunnar og eiga góðan dag saman í fallegu umhverfi.
Laugarás Lagoon er einstakt tveggja hæða baðlón við bakka Hvítár, þar sem íslensk náttúra, heitt vatn og afslappað andrúmsloft skapa fullkomna umgjörð fyrir góða stund með vinnufélögunum.
Hér er hægt að hægja á tempóinu, spjalla, skála, njóta útsýnisins og einfaldlega hafa það gott saman.
Sérstakt starfsmannaverð
Í samstarfi við Laugarás Lagoon bjóðum við upp á sérstakt verð fyrir starfsmannahópa, tilvalið fyrir fyrirtæki sem vilja gera vel við starfsfólkið og njóta góðrar stundar saman.
Innifalið í starfsmannaverði:
• Aðgangur að Laugarás Lagoon
• Aðgangur að allri almennri baðaðstöðu
• Einn drykkur á mann
• Persónulegur skápur og búningsaðstaða
• Rjóður húð- og hárvörur í sturtum
• Aðgangur að barnum í lóninu
Gerið enn meira úr deginum. bætið við góðum mat!
Það þarf auðvitað ekki að enda þegar komið er upp úr lóninu!
Til að gera daginn enn betri er hægt að bæta við máltíð á Ylju, veitingastað Laugarás Lagoon. Þar er lögð áhersla á ferskt og staðbundið hráefni frá bændum, gróðurhúsum og framleiðendum á Suðurlandi.
Þetta er tilvalin leið til að gera heilan starfsmannadag úr ferðinni byrja á góðri slökun og skál í lóninu og enda svo daginn saman yfir góðum mat.
Laugarás Lagoon + góður matur = ansi góð uppskrift að starfsmannadegi. 😊
Fyrir hópa sem vilja aðeins meira fjör er einnig hægt að skoða möguleikann á að sameina Laugarás Lagoon við aðra afþreyingu á Suðurlandi og búa til heilan pakka fyrir hópinn.
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.
Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.





